23.01.1951
Efri deild: 54. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 89 í C-deild Alþingistíðinda. (3064)

38. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Steingrímur Aðalsteinsson:

Þar sem ekki eru nein líkindi til þess, að sú afgreiðsla fáist á málinu að þessu sinni, sem ég hafði helzt viljað, þ. e. sérsköttun hjóna, en hins vegar felst í þessari till., að hv. Ed. lýsir yfir, að hún óskar eftir að fyrir næsta Alþ. komi fram till. um það mál, þá mun ég greiða atkv. með till. og segi já.