16.02.1951
Efri deild: 73. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 156 í C-deild Alþingistíðinda. (3187)

109. mál, erfðalög

Forseti (BSt):

Ég vil taka það fram út af þeim umræðum, sem fram hafa farið, að ef ætlað er að láta 11., 12. og 13. gr. standa, þá mun réttara, að það komi fram sem brtt. við frv., því að venja er að skoða frv. fallið, ef 1. gr. þess er felld.