19.02.1951
Efri deild: 74. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í C-deild Alþingistíðinda. (3205)

109. mál, erfðalög

Forseti (BSt):

Það hefur orðið samkomulag um að breyta dagskrártill. og hljóðar hún þannig:

„Í trausti þess, að ríkisstjórnin undirbúi löggjöf um stofnun og rekstur hælis fyrir öryrkja, sem misst hafa hluta starfsgetu sinnar, og leggi tillögur sínar um það efni og um fastan tekjustofn í þessu skyni fyrir næsta Alþingi, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.“