19.02.1951
Efri deild: 74. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 170 í C-deild Alþingistíðinda. (3242)

96. mál, fjárhagsráð

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson) :

Herra forseti. Þessu máli hefur verið frestað lengi, og er eðlilegt, að óskað sé eftir því; að það hafi einhvern framgang. Afgreiðsla þess hlýtur að vera undir því komin, hve víðtækar fjárfestingar verður freistazt til að veita á þessu ári og í hvaða formi fjárfestingar verða eftirleiðis. Þetta hefur verið til athugunar hjá ríkisstj. Ég vil leyfa mér að fara þess á leit, að umr. um málið verði frestað, enda ólíklegt, að þeim yrði lokið í dag.