17.10.1950
Neðri deild: 4. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 183 í C-deild Alþingistíðinda. (3265)

19. mál, saksóknari ríkisins og rannsóknarstjóri

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson) :

Herra forseti. Ég gerði nokkra grein fyrir þessu frv. í sambandi við það frv., sem var hér síðast til umr. (frv. um meðferð opinberra mála). Eins og ég tók fram, geri ég ekki ráð fyrir, að frv. verði samþ. nú, en ég legg það fram til að sýna, hvernig framtíðarskipulag þessara mála er hugsað.

Ég legg til, að frv. verði vísað til allshn. að þessari umr. lokinni.