16.11.1950
Neðri deild: 22. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 184 í C-deild Alþingistíðinda. (3270)

32. mál, viðskiptasamningar við Pólland

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson) :

Herra forseti. Þetta frv. fjallar eingöngu um verðjöfnunarsjóð og framkvæmd á viðskiptasamningum frá 1948 og 1949. Fjhn. hefur lagt til, að frv. verði samþ., ekki af því að það hafi nokkurt gildi framar, heldur hefur nefndin ekkert við framkvæmd þess að athuga. Það mun venja, að ríkisvaldið láti brtt. sínar um viðskipti við útlönd ganga að minnsta kosti gegnum aðra þingdeild, og legg ég því til, að það verði látið fara í gegn.