27.11.1950
Neðri deild: 28. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 267 í C-deild Alþingistíðinda. (3423)

45. mál, eyðing refa og minka

Jörundur Brynjólfsson:

Herra forseti. Hinn 26. f. m. var útbýtt hér í hv. d. frv. til l. um eyðingu refa og minka. Ég ætla, að ég muni það rétt, að næsta dag hafi því verið vísað til hv. landbn. Síðan hefur ekki bólað á því, að þetta mál kæmi til meðferðar hér í d. Ég veit ekki, hvað afgreiðslu þess líður hjá n., en ég vil biðja hæstv. forseta um að hlutast til um, að þetta mál komi fljótlega til meðferðar hér í d., og ég hygg, að það sé orðið það kunnugt hér, að n. ætti að vera auðvelt að afgreiða það frá sér í einhverri mynd.