05.02.1951
Neðri deild: 63. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 279 í C-deild Alþingistíðinda. (3480)

128. mál, Iðnaðarbanki Íslands

Frsm. (Gunnar Thoroddsen) :

Herra forseti. Mál þetta er flutt af meiri hl. iðnn., og var gerð grein fyrir því við 1. umr. Þegar 2. umr. hófst, var óskað eftir því, að n. tæki málið til athugunar, og var orðið við þeirri ósk. Á nefndarfundi á föstudaginn varð það hins vegar að samkomulagi, að málið héldi áfram til 3. umr. og hefði n. þá viðræður við ríkisstj. um málið milli 2. og 3. umr.