23.02.1951
Neðri deild: 74. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 288 í C-deild Alþingistíðinda. (3500)

128. mál, Iðnaðarbanki Íslands

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Það var á það bent af hv. 7. þm. Reykv., að í grg. stendur, að sumarið 1948 hafi þáv. iðnmrh. skrifað landssambandi íslenzkra iðnrekenda um þetta mál. Samkv. því hefur það tekið ráðherrann á 4. ár að hugsa um, hvort hann ætti að fela landssambandinu að semja þetta frv.