11.01.1951
Neðri deild: 47. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 323 í C-deild Alþingistíðinda. (3537)

141. mál, innflutningur búfjár

Pétur Ottesen:

Ég held, að það væri hyggilegast, að landbn. tæki málið til frekari athugunar, svo að það komi þá í ljós, hverjir eru fylgjandi frv. og hverjir á móti því, en mér virðist æskilegt, að það komi í ljós. Því geri ég það að till. minni, að því verði vísað til landbn.