11.01.1951
Neðri deild: 47. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 323 í C-deild Alþingistíðinda. (3538)

141. mál, innflutningur búfjár

Forseti (SB) :

Sá háttur mun að vísu ekki hafður venjulega á að vísa máli, sem flutt er af nefnd, til sömu nefndar. En ef ósk um það verður ítrekuð, þá mun það verða gert, en annars skildist mér á hv. form. landbn., að nefndin mundi hvort sem er taka málið til athugunar milli umræðna.