16.02.1951
Neðri deild: 70. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 339 í C-deild Alþingistíðinda. (3571)

165. mál, menntaskólar

Forseti (SB) :

Út af fyrirspurn hv. þm. A-Sk., hvort ég áliti ekki hægt að fresta þessu máli til mánudags, vil ég taka það fram, að ég hafði hugsað mér að flýta þessu máli, og vildi þá aftur beina því til hv. þm., hvort hann ekki sér, sér fært að stytta mál sitt eða geyma sína athugasemd til 3. umr. Vil ég í því sambandi benda á, að hv. 3. landsk. hefur tekið sína brtt. til baka til 3. umr.