06.03.1951
Efri deild: 85. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 377 í C-deild Alþingistíðinda. (3606)

165. mál, menntaskólar

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Hv. 6. landsk. þm. endaði sína löngu ræðu með því að ræða ókostina frá uppeldislegu sjónarmiði. Fyrrverandi skólameistari, Sigurður heitinn Guðmundsson, var því andvígur, að gagnfræðadeildin væri afnumin, og tel ég hann hafa verið meiri uppeldisfræðing en hv. 6 landsk. þm. Tek ég meira tillit til hans en hv. 6. landsk. þm. og segi því já.

2. gr. samþ. með 8:5 atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 10:3 atkv.