30.11.1950
Efri deild: 28. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 435 í C-deild Alþingistíðinda. (3697)
117. mál, jeppabifreiðar o.fl.
Flm. (Páll Zóphóníasson) :
Herra forseti. Ég skal fyrst leyfa mér að svara hv. sessunaut mínum. Hann spyr, hvort öll héraðasamböndin eigi að fá bifreiðar. Nei, ekki þau, sem hafa marga menn, sem mæla lítil svæði hver, eins og t. d. á Vestfjörðum. Ég tel ekki þörf að sjá þeim fyrir sérstökum farkosti.
Hann talaði um, hvort ekki væri hægt að taka bíla af sumum opinberum fyrirtækjum og láta í þessi störf. Það er ekki mitt að dæma um það, ég skal ekki um það segja. Þá yrðu að liggja fyrir upplýsingar, hvað marga bíla gæti verið þar um að ræða. Ég legg engan dóm á það.
Hann spurði, hvers vegna ég hefði tekið Keldur með. Það er af því, að þar er dýralæknir, sem oftlega er kallaður langt burt, jafnvel í aðra landsfjórðunga, til að skera úr, hvað sé þar um að vera. Hann þarf þess vegna helzt að hafa aðgang að bíl.
Hæstv. ráðh. vil ég segja það, að þetta er í þriðja skiptið, sem hann sér framan í svona frv., alltaf áður með sæmilegri velþóknun þangað til nú. Hann hefur áður séð framan í það í þessu formi hjá mér. Hann hefur líka séð framan í það í því formi, að það voru eingöngu læknar í Reykjavík, sem áttu að fá bílana. Þá tók hann því með mestu velþóknun, en þegar það breyttist svo, að það voru líka læknar í sveitahéruðunum, sem áttu að fá eitthvað, þá breyttist tónninn, svo að frv. dagaði uppi. Nú sér hann framan í það aðeins í þeirri mynd, að bílarnir eru aðeins ætlaðir þeim félagasamtökum, sem öll, burtséð frá Keldum, telja 1–2 þús. menn hvert, en nokkuð þó misjafnt eftir því, hver samböndin eru. Fyrsti bíllinn á að fara til félags, sem hefur yfir 2 þús. menn, annar þangað, sem er tiltölulega fátt, ekki þúsund, þriðja aftur upp í þúsund eða þar um bil o. s. frv. Alls staðar er mikill fjöldi manna, sem stendur að þessum félagasamtökum, allt upp yfir 2 þúsund manns. Þá eina bíla hef ég tekið úr. Læknarnir, sem áttu ekki bíl, munu nú flestir hafa keypt þá á svörtum markaði, en um sveitalæknishéruðin var einu sinni ákveðið, að þau ættu sjálf bílana, og ætlazt til, að þau fengju þá með vægari kjörum en aðrir. Þetta komst í framkvæmd sums staðar, en ekki nema óvíða. Ég tel því langt frá því, að ég hafi á nokkurn hátt misboðið hv. þm. með flutningi þessa frv. Hitt er annað mál, að ég geri mér enga von um, að hér á þingi sé skilningur fyrir, að þessi félagasamtök þurfi á þessu að halda. Þau geta auðvitað keypt bíla á svörtum markaði, því að það er alltaf hægt, meira að segja bíla, sem búið er að flytja inn með leyfi fjárhagsráðs. Þeir kosta upp í 120 þús. kr. Einn var til boða nú fyrir tveimur vikum og kostaði 120 þús. kr. nýr. Annar var í kassanum, kom í sumar, hann fékkst fyrir 100 þús. kr. Þessir bílar hafa komið inn með góðu leyfi ríkisstj. Það er sagt, að það sé ekki hægt að láta gjaldeyri fyrir bíla, en einhvern veginn hafa þeir verið borgaðir. Það getur líka verið hægt að semja við sjómenn um að kaupa svona bíla, annars held ég, að það sé búið að taka fyrir það nú. Mér finnst ég ekki misbjóða þinginu með þessu. Hitt er annað mál, að það má drepa frv. við 1. umr. eins og við 3. Það getur verið, að það verði gert. Hitt legg ég alveg í vald hæstv. forseta, í hvaða n. það fer.