19.01.1951
Sameinað þing: 31. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í D-deild Alþingistíðinda. (3766)

118. mál, uppeldisheimili handa vangæfum börnum og unglingum

Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):

Herra forseti. Ég get að sjálfsögðu látið nægja að vísa til nál. allshn. um þetta mál. Þetta er nauðsynjamál og þýðingarmikið og krefst vandaðs og góðs undirbúnings. Nefndin mælir með því, að þáltill. verði samþ.