16.10.1950
Sameinað þing: 5. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 159 í D-deild Alþingistíðinda. (4009)

25. mál, friðun rjúpu

Forseti (JPálm):

Ég get samþ. það af minni hálfu, að málið verði ekki afgr. nú, þótt ég hefði talið óhætt að byrja um það umr. Það stendur þannig á, að friðunartími rjúpunnar var útrunninn í gær, og þess vegna vildi ég taka málið svo fljótt fyrir, en þar sem svo eindregin ósk kemur fram um það frá hæstv. ríkisstj. að taka málið ekki fyrir í dag, skal ég verða við henni og hætta við að leita afbrigða, en mun taka málið fyrir á morgun.