24.01.1951
Sameinað þing: 32. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 283 í D-deild Alþingistíðinda. (4171)

119. mál, fjárþörf landbúnaðarins

Skúli Guðmundsson:

Það eru aðeins örfá orð út af samanjöfnuði hv. 2. þm. Reykv. á kjötverðinu. Það er vitanlega til hagsbóta fyrir bændur að selja kjötið vestur til Ameríku, þar sem á undanförnum árum hafa safnazt fyrir kjötbirgðir í landinu, sem ekki hefur verið hægt að selja.