08.11.1950
Sameinað þing: 12. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 333 í D-deild Alþingistíðinda. (4319)

64. mál, launalög

Fyrirspyrjandi (Gylfi Þ. Gíslason) :

Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir svar hans, þó að það væri í styttra lagi, en vil um leið leyfa mér að bera fram fyrirspurn um, hvort ríkisstj. muni ekki halda áfram greiðslu uppbóta á laun opinberra starfsmanna, þó að nýtt launalagafrv. verði ekki lagt fram.