29.11.1950
Sameinað þing: 19. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 337 í D-deild Alþingistíðinda. (4336)

94. mál, Keflavíkurflugvöllur

Magnús Kjartansson:

Herra forseti. Ég veiti því athygli, að fsp. mín varðandi Keflavíkurflugvöll er ekki á dagskrá þessa fundar, og langar mig til að grennslast fyrir um það hjá hæstv. ríkisstj. eða hæstv. flugmrh., hverju þetta sætir og hvort ekki megi bráðlega vænta svars við henni. Mér þykir næsta kynleg þessi töf á málinu, þegar í hlut á jafnsamvizkusamur maður og hæstv. flugmrh. er.