06.12.1950
Sameinað þing: 23. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 338 í D-deild Alþingistíðinda. (4342)

94. mál, Keflavíkurflugvöllur

Viðskmrh. (Björn Ólafsson) :

Herra forseti. Mér skilst, að það sé vilji hæstv. forseta, að samkv. þingsköpum sé þessum fyrirspurnum svarað. En eins og ég hef áður sagt, kostar það mikla vinnu að afla þessara upplýsinga. Ég sé ekki ástæðu til að leggja vinnu í það að afla upplýsinga, sem hv. þm. notar síðar eingöngu til að þyrla upp rógi um þá þjóð, sem Íslendingar hafa af fúsum vilja samið við um rekstur Keflavíkurflugvallar. — Þetta er mitt svar.