29.11.1950
Sameinað þing: 19. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 338 í D-deild Alþingistíðinda. (4346)
108. mál, lýðveldisfáninn
Fyrirspyrjandi (Gísli Jónsson) :
Herra forseti. Það barst í tal í sumar í Þingvallan. að grennslast fyrir um það, hvar lýðveldisfáninn, sem dreginn var að hún á Lögbergi við lýðveldisstofnunina árið 1944, mundi vera varðveittur, og var framkvæmdastjóra n. falið að komast eftir því, í því skyni að óska eftir, að fáninn yrði framvegis varðveittur sem minjagripur þjóðarinnar á þjóðminjasafninu. Með því að framkvæmdastjóri hefur tjáð mér, að honum hafi ekki tekizt að komast að því, hvar fáninn sé niður kominn, er þessi fsp. fram komin, ekki af því að ég haldi persónulega, að hann sé ekki vel varðveittur, heldur til þess að fá að vita, hvar hann sé, og þætti mér vænt um að fá yfirlýsingu hæstv. forsrh. um það, að hann verði framvegis varðveittur á þjóðminjasafninu sem einn af minjagripum þjóðarinnar.