28.02.1951
Sameinað þing: 48. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 389 í D-deild Alþingistíðinda. (4452)

186. mál, launaflokkun opinberra starfsmanna o.fl.

Fyrirspyrjandi (Hannibal Valdimarsson) :

Herra forseti. Já, þessir tveir liðir fsp., 1. og 3. liður, eru um einstök afmörkuð atriði, sem ekki þurfa nánari útskýringar við. Ég bar fram 1. liðinn eingöngu vegna þess, að þar er um að ræða þá ríkisstofnun, sem hefur flesta starfsmenn í sinni þjónustu, eða á fjórða hundrað manns. — Ég vænti svo svars hæstv. ráðh.