19.12.1950
Sameinað þing: 28. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1561 í B-deild Alþingistíðinda. (457)

Þinghlé

forseti (JPálm) :

Það er nú ákveðið, að frá þessum tíma hefjist jólafrí þingmanna, og verður næsti fundur í sameinuðu Alþ. haldinn mánudaginn 8. jan. 1951 á venjulegum fundartíma, en að öðru leyti boðaður með dagskrá. — Og nú, um leið og ég tilkynni þetta þingfrí, þá vil ég óska öllum hv. þm. gleðilegra jóla og farsældar og ánægju á komandi nýári og þakka þeim fyrir ánægjulega samvinnu á þessu þingi, það sem af er. Ég óska utanbæjarþingmönnum góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu og öllum hv. þm., starfsmönnum þingsins og hæstv. ríkisstjórn gleði og ánægju á komandi jólum og nýári.