06.03.1951
Neðri deild: 85. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1563 í B-deild Alþingistíðinda. (472)

Starfslok deilda

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér fyrir hönd okkar dm. að þakka hæstv. forseta fyrir góðar óskir í okkar garð. Einnig vil ég leyfa mér — og veit ég, að ég mæli fyrir munn allra þdm. — að þakka honum fyrir góða og réttsýna fundarstjórn og gott samstarf við okkur þm. Ég vil óska honum þess, að við sjáum hann hér heilan aftur í haust, og vil ég biðja hv. þdm. að taka undir óskir mínar til hæstv. forseta með því að rísa úr sætum. — [Deildarmenn risu úr sætum.]