28.11.1950
Neðri deild: 29. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 130 í B-deild Alþingistíðinda. (489)

35. mál, vísitala framfærslukostnaðar

Frsm. meiri hl. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Þetta frv., sem er staðfesting á brbl., var athugað í nefnd, og meiri hl. leggur til, að það verði samþykkt. Þetta er ekki aðeins staðfesting á brbl., heldur á því ástandi líka, sem nú ríkir, og þeim framkvæmdum, sem urðu á útreikningi vísitölunnar. Um þetta var deilt hér í fyrra sumar, eins og þm. muna, og ástæðulaust að rekja það.

Nm. er ekki kunnugt um, að neinn ágreiningur sé um þetta nú, en einn nm. mun vera andvígur, og gerir hann þá grein fyrir afstöðu sinni.