12.12.1950
Efri deild: 35. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 131 í B-deild Alþingistíðinda. (595)

35. mál, vísitala framfærslukostnaðar

Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Fjhn. hefur athugað þetta frv., sem hér liggur fyrir. Það er staðfesting á bráðabirgðalögum, sem gefin voru út á yfirstandandi ári og samþ. í Nd. án breytinga.

Fjhn. þessarar deildar leggur til, að frv. verði samþ. án breytinga.