19.10.1950
Neðri deild: 5. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 184 í B-deild Alþingistíðinda. (715)

9. mál, tekjuskattsviðauki, lækkun skatts af lágtekjum o.fl.

Frsm. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Með þessu frv. er lagt til, að núgildandi ákvæði um tekjuskattsviðauka gildi næsta ár, en lög um þetta efni hafa verið í gildi allmörg undanfarin ár. Fjhn. er sammála um að mæla með því, að frv. verði samþ.