13.12.1950
Efri deild: 37. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 186 í B-deild Alþingistíðinda. (729)

9. mál, tekjuskattsviðauki, lækkun skatts af lágtekjum o.fl.

Gísli Jónsson:

Ég tel óeðlilegt, að ríkissjóður reikni 1% dráttarvexti af þessum sköttum, þó ekki væri fyrir annað en það, að það kemur einkennilega fyrir að taka þessa vexti af fyrirtækjum, sem á öðru leitinu er verið að hjálpa með því að gefa þeim eftir stórar fjárfúlgur, og ég segi því nei.