12.12.1950
Neðri deild: 37. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 192 í B-deild Alþingistíðinda. (751)

10. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Frsm. meiri hl. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Frv. þetta, sem flutt er af hæstv. ríkisstj., hefur legið fyrir fjhn. Eins og fram kemur í nál. á þskj. 324, þá leggur n. til, að frv. verði samþ., en mun leggja fram nokkrar brtt., sem ekki liggja enn fyrir, en meiri hl. telur ekkert athugavert við það, að frv. fari til 3. umr., og munu till. liggja fyrir við þá umr. Minni hl., hv. 2. þm. Reykv., skilar sérstöku áliti á þskj. 302, og hv. þm. V-Ísf. hefur lagt fram brtt. á þskj. 308. Meiri hl. getur ekki fallizt á þær brtt., en ég mun ekki gera þær að frekara umræðuefni hér að svo stöddu.