14.12.1950
Sameinað þing: 26. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 351 í B-deild Alþingistíðinda. (845)

1. mál, fjárlög 1951

Frsm. samvn. samgm. (Sigurður Bjarnason):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Eins og kunnugt er, beindi hv. fjvn. þeirri ósk til samvinnunefndar samgöngumála, að hún tæki aftur brtt. sína um styrk til flóabáta. Samvinnunefnd gerði þetta, en síðan hefur ekkert gerzt í þessu annað en það, að ég hygg, að hv. fjmrh. og fjvn. hafi séð það, að þessu máli mátti trauðla á annan veg haga en n. hafði lagt til. N. hefur því lagt fram till. sína á ný, og vænti ég, að hún nái fram að ganga.