16.12.1950
Sameinað þing: 27. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 395 í B-deild Alþingistíðinda. (883)

1. mál, fjárlög 1951

Atvmrh. (Ólafur Thors):

Ég hef að vísu sjálfur borið fram till. um að auka styrk til leiklistar. En það stendur að því leyti öðruvísi á um það, sem hér er borið fram, að öllum þessum félögum, sem hér ræðir um, er ætlaður annar styrkur á fjárl. en þessi, og hér er enginn styrkur ætlaður til þeirra, sem ekki hafa áður notið styrks. Ég vil ekki ljá þessu jákvæði og sit því hjá.