16.12.1950
Sameinað þing: 27. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 395 í B-deild Alþingistíðinda. (884)

1. mál, fjárlög 1951

Skúli Guðmundsson:

Ég tel það gott að styrkja leiklistarstarfsemi sem víðast um landið, en ég er mjög óánægður með þau ákvæði, sem þarna fylgja með. Í fyrsta lagi, að þetta megi aðeins ganga til þeirra, sem nú þegar eru inni á fjárl. Sömuleiðis álít ég mjög óviturlegt, að þessu sé úthlutað eftir tölu leiksýninga hjá félögunum. Því segi ég nei.