16.12.1950
Sameinað þing: 27. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 395 í B-deild Alþingistíðinda. (885)

1. mál, fjárlög 1951

Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):

Eftir að búið er að samþ. þær till. um styrk til leiklistar, sem samþ. hafa verið, mundi ég hafa fylgt þessari till., ef hún hefði aðeins verið aukastyrkur til að örva leiklistarstarfsemi í kaupstöðum og kauptúnum, en ég vil taka undir það, að síðasti liður till. er mjög óheppilegur, þ.e. að styrkurinn sé aðeins bundinn við þá staði, sem áður hafa verið styrktir til leikstarfsemi. Því segi ég nei.