14.12.1950
Efri deild: 39. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 201 í B-deild Alþingistíðinda. (901)

10. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Við þetta frv. var gerð breyt. varðandi söluskattinn í hv. Nd., og er ekki ástæða til að fjölyrða um þetta mál. — Ég leyfi mér að leggja til, að frv. verði vísað til hv. fjhn. að lokinni þessari umr.