27.10.1950
Neðri deild: 11. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 434 í B-deild Alþingistíðinda. (995)

41. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Með þessu frv. er lagt til, að lagt verði niður embætti rannsóknardómara í skattamálum, sem sett var á stofn með l. nr. 20 1942. Það þykir fært að komast af án þess að starfrækja þetta embætti, og mun verða að því nokkur sparnaður.

Ég leyfi mér að leggja til, að frv. verði vísað til fjhn. að lokinni umr.