14.12.1951
Neðri deild: 44. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 750 í B-deild Alþingistíðinda. (1010)

21. mál, ríkisborgararéttur

Forseti (SB):

Ég vildi mjög gjarnan geta orðið við óskum þessa hv. þm., en þar sem umr. hefur þegar verið frestað einu sinni og forseti getur ekki ráðið því, hvort hæstv. ráðh. er viðstaddur eða ekki, sé ég mér ekki fært að verða við óskum hans að þessu sinni, og mun því umr. verða haldið áfram.