21.01.1952
Neðri deild: 67. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 777 í B-deild Alþingistíðinda. (1075)

21. mál, ríkisborgararéttur

Forseti (SB):

Út af þeirri fyrirspurn, sem hv. 2. þm. Reykv. og hv. þm. Siglf. hafa beint til forseta, skal það tekið fram, að till. hefur ekki verið felld í þessari hv. d. um að veita þeim manni ríkisborgararétt, sem um getur í fyrri lið till. Hins vegar var þessi till. um ríkisborgararétt borin upp ásamt till. um tvo aðra menn og var felld. Má því ætla, að sá uppburður till. hafi haft áhrif á þann lið till., sem tekinn er upp á þskj. 726. því verður að teljast leyfilegt að bera undir atkv. fyrri lið till. á þskj.726.