27.11.1951
Efri deild: 35. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 778 í B-deild Alþingistíðinda. (1091)

38. mál, hámark húsaleigu o. fl.

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Ég sé, að enginn hæstv. ráðh. er mættur hér. En ég minnist þess, að á síðasta þingi, í umr. um húsaleigumálin, lýsti hæstv. félmrh. því yfir, að sérstök n. mundi skipuð til að undirbúa löggjöf um þetta efni. Í þessu sambandi vildi ég spyrja, hvort þessi mál hafi ekki verið athuguð og hvort ekki megi vænta þess, að árangurinn af þeim athugunum verði lagður fyrir Alþ. Veit ég ekki, hvort einhver hv. dm. getur gefið upplýsingar um þetta í fjarveru ráðherra.