04.01.1952
Neðri deild: 53. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 783 í B-deild Alþingistíðinda. (1116)

38. mál, hámark húsaleigu o. fl.

Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):

Herra forseti. Ég ætla ekki að ræða þetta atriði, sem brtt. hv. 2. þm. Eyf. fjallar um. Þetta var ekki í upphaflega frv. og var að ég held sett inn í í Ed. Ég ætla ekki að fara að ræða þetta atriði, en held, að í Ed. hafi verið nokkurn veginn samkomulag um að bæta þessu inn í, og tel ég rétt, að n., sem fjallaði um málið, taki það til athugunar og að ekki fari fram atkvgr. um það nú á þessu stigi. Fyrir mitt leyti tel ég ekki fráleitt að ræða þetta atriði við hv. nefnd.