23.01.1952
Sameinað þing: 35. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 795 í B-deild Alþingistíðinda. (1141)
169. mál, fjáraukalög 1949
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég vil beina því til hæstv. ráðh., hvort hann gæti ekki séð um, að slíkar töluskekkjur sem hér komu fram eigi sér ekki stað. Þessi reikningur er venjulega sendur til fjvn. á síðustu stundu, og er því ekki auðvelt fyrir nm. að athuga, hvaða tölum hún má treysta og hverjum ekki. Hér er um rangan samanburð að ræða, og eru leiðréttingar fjvn. á þskj. 747.