22.01.1952
Efri deild: 68. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 814 í B-deild Alþingistíðinda. (1188)
167. mál, fasteignaskattar til sveitarsjóða
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Ég verð að mótmæla því, sem hv. 6. landsk. þm. sagði um skattgreiðslu samvinnufélaga, að vísu ekki um skattgreiðslu samvinnufélaga af fasteignum, það er óumdeilt atriði. En hitt er líka vitað, að kaupmenn verða að borga útsvar til þess staðar, sem verzlunin er á, en hinir, félagsmenn kaupfélaganna, greiða gjöld sín á hinum ýmsu stöðum, þar sem þeir eiga heimill. Það er því augljóst mál, að kaupstaðurinn fær allt útsvar kaupmannanna, en útsvör kaupfélaganna dreifast út um byggðirnar, og auk þess dreifist ágóðinn, svo að hvergi nemur neinu. Enn er það, að ekki er öllum ágóða kaupfélaganna úthlutað, enda sjáum við allar hinar stóru hallir, sem samband kaupfélaganna hefur byggt fyrir hinar stóru fúlgur af arði verzlunarinnar, sem eru geymdar hjá kaupfélögunum. Það er því auðvitað, að það eru mjög mismunandi reglur, sem gilda um þetta, og sveitarfélögin þar, sem kaupfélögin eru, verða því verr úti að þessu leyti en hin, þar sem engin kaupfélög eru.