04.12.1951
Neðri deild: 36. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 873 í B-deild Alþingistíðinda. (1299)

101. mál, þingsköp Alþingis

Frsm. meiri hl. (Jörundur Brynjólfsson):

Herra forseti. Meiri hl. allshn. hefur borið fram brtt. við frv. þetta, sem prentuð er á þskj: 314. Hún er við 1. gr. frv. og varðar skyldur ríkisstj. til þess að bera utanríkismál undir utanrmn. Það var talið, að um nokkurt vafaatriði væri að ræða, en nú eru ákvæði gr. tvímælalaus með öllu, svo að gr. verður ekki misskilin. Því var brtt. borin fram við frv., og það leikur ekki á tveim tungum, að jafnskylt er að bera utanríkismál undir utanrmn. og er í fyrri ákvæðum.

Ég sé svo ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta frv., þar eð það liggur mjög ljóst fyrir.