14.12.1951
Efri deild: 43. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 909 í B-deild Alþingistíðinda. (1361)

142. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Þetta mál, sem er 8. mál á dagskránni, stendur í nánu sambandi við það, sem afgr. var næst á undan, frv. um fiskveiðasjóð, og hefur sætt athugun um leið og það hjá sjútvn., sem einróma leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt.