15.11.1951
Efri deild: 29. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 46 í B-deild Alþingistíðinda. (138)
42. mál, happdrætti
Frsm. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Fjhn. hafði þetta mál til athugunar, en efni þessa frv. er að hækka úr 25 þús. í 30 þús. vinningafjölda happdrættis Háskóla Íslands, sem frá upphafi hefur verið 25 þús. eins og nú stendur í lögunum. Samkv. upplýsingum frá háskólanum hafa miðar selzt um 95%, og þykir því nauðsynlegt að hækka vinningafjöldann í 30 þús. Samkv. upplýsingum frá rektor háskólans taldi hann, að happdrættið mundi eflast um 100 þús. kr. árlega, auk þess sem í hlut ríkissjóðs féllu 20 þús. árlega. Þá upplýsti rektor að gefnu tilefni, að búið væri að eyða í háskólalóðina 11/2 millj., en mikið var unnið við að laga lóðina á siðasta ári, en enn mun þó þurfa um 1/2 millj. til að ljúka verkinu. Þá staðfesti hann einnig, að það hefði orðið að samkomulagi, að háskólinn legði fram fé til byggingar yfir náttúrugripasafnið. Samkv. teikningu, er gerð var, og verðlagi, er þá var, var gert ráð fyrir, að þyrfti 11/2 millj. kr. til að ljúka byggingunni. Síðar þegar málið var athugað kom í ljós, að of lítið var að byggja eftir þeirri teikningu, og var hún því stækkuð allverulega. Nú taldi rektor, að byggingarkostnaðurinn eftir þeirri teikningu, sem talið væri nauðsynlegt að byggja eftir, mundi verða um 4 millj. kr.
Með tilvísun til þessa hefur nefndin ákveðið að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt og þá að sjálfsögðu háskólanum haldið að hinum gefnu loforðum varðandi byggingu náttúrugripasafnsins. — Hv. 1. landsk. var ekki á fundi, þegar þetta var afgreitt, og mun ekki hafa fengið boð um fundinn, eftir því sem hann sjálfur hefur upplýst. Hefur hann því ekki tekið afstöðu til málsins, en mun gera grein fyrir henni, ef hann sér ástæðu til. — Ég legg svo til fyrir hönd nefndarinnar, að frv. verði samþ. óbreytt.