20.11.1951
Neðri deild: 30. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 943 í B-deild Alþingistíðinda. (1452)

83. mál, Iðnaðarbanki Íslands hf

Frsm. meiri hl. (Gunnar Thoroddsen):

Ég vildi aðeins vekja athygli á því, að atkvgr. um þetta mál hefur verið frestað fund eftir fund (SkG: Ekki hef ég óskað þess.), og það er mjög óheppilegt, ef afgreiðsla málsins þarf enn að dragast. Ég mælist til þess við hæstv. forseta, að hann láti atkvgr. nú fram fara, þannig að málið komist til 3. umr.