20.11.1951
Neðri deild: 30. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 943 í B-deild Alþingistíðinda. (1453)

83. mál, Iðnaðarbanki Íslands hf

Forseti (SB):

Það er rétt, sem hv. þm. V-Húnv. vakti athygli á, að nokkrir hv. þdm. eru fjarverandi. En hins vegar er einnig rétt, að atkvgr. um málið hefur verið frestað tvísvar eða þrisvar áður, þannig að það þykir illmögulegt, að svo gangi lengur. (SkG: Er það ekki vegna fjarvistar hv. 7. þm. Reykv. áður? — GTh: Nei, það er tilhæfulaust.)