27.11.1951
Neðri deild: 34. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 957 í B-deild Alþingistíðinda. (1468)

83. mál, Iðnaðarbanki Íslands hf

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég dreg ekki í efa, að hv. 7. þm. Reykv. hafi fengið sínar upplýsingar hjá hæstv. ráðherra og að ráðh. hafi fengið þær hjá bönkunum, en þar með er ekki sagt, að þessar heimildir séu svo traustar sem hann vildi ætla að væri, og hef ég þegar gert nokkra grein fyrir ástæðunum til þessa. Það er ýmislegt varðandi þessar tölur, sem ég hefði viljað athuga alveg sérstaklega, en eins og ég sagði fyrr, þá eru skýrslur bankanna um þessi efni enn ekki fyllilega nákvæmar.