10.12.1951
Efri deild: 40. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 958 í B-deild Alþingistíðinda. (1484)

83. mál, Iðnaðarbanki Íslands hf

Forseti (BSt):

Ég sagði ekki. að svo væri, að samkomulag væri um það að hindra afgreiðslu þessa máls, og mun ég ekki beita valdi og hindra, að þetta mál komi fyrir. Hins vegar finnst mér nú full ástæða til þess að slíta fundi, þegar komið er miðnætti. en málið verður tekið fyrir á næsta fundi deildarinnar.