19.12.1951
Efri deild: 50. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 984 í B-deild Alþingistíðinda. (1510)
83. mál, Iðnaðarbanki Íslands hf
Karl Kristjánsson:
Herra forseti. Iðnaðurinn er einn af þremur aðalundirstöðuatvinnuvegum þjóðarinnar, og vonir sínar verður þjóðin að byggja á því, að hann blómgist. Nú er þessi atvinnuvegur svo settur, að hann býr við lánsfjárskort, og hér liggur fyrir frv. um stofnun iðnaðarbanka, sem reyna á að bæta með úr lánsfjárþörfinni. Hins vegar er ég ekki viss um, að með þessu frv. sé rétt að farið. Ég er ekki viss um, að stofnun nýs banka í viðbót leiði það af sér, að fjármagn til útlána aukist. Ég held, að þrír fátækir bankar séu nógu margir bankar fyrir litla þjóð. Ég held, að í þessu þjóðfélagi, sem við skipum, séu of margir í miðlarastörfum. Ég býst við, að nóg sé fyrir okkar litla þjóðfélag að hafa bankastarfsmenn í þremur bankastofnunum og ekki sé heppilegt að bæta þar miklu við. Ég held, að brtt. hv. þm. Seyðf. um efling iðnlánasjóðs sé hæfilegri úrlausn, m.a. skynsamlegri vegna þess, að nú sem stendur er verið að endurskoða bankalöggjöfina, og meðan álit þeirrar nefndar, sem að því starfar. liggur ekki fyrir, er ekki tímabær stofnun nýs banka. Ég fylgi till. hv. þm. Seyðf., en ef svo fer, að hún nær ekki samþykki og ákveðið verður að stofna nýjan banka, þá vil ég, vegna þess að ég vil styðja iðnaðinn, að það verði gert sem myndarlegast. Því hef ég og hv. 2. þ.n. S-M. (VH) lagt fram brtt., sem prentuð er á þskj. 483. Sú brtt. gengur út á það, að hækkað verði hlutafé bankans um 11/2 millj. kr. Brtt. er við 3. gr., að gr. orðist svo:
„Hlutafé félagsins skal nema allt að 8 millj. kr. ríkissjóður skal leggja fram allt að 3 millj. kr. Félagi íslenzkra iðnrekenda, Landssambandi iðnaðarmanna og Sambandi íslenzkra samvinnufélaga skal heimilt, hverju um sig, að leggja fram 11/2 millj. kr. í hlutafé, en 1/2 milli. kr. skal aflað með hlutafjársöfnun innanlands samkvæmt opinberu útboði, þegar stjórn hlutafélagsins ákveður að fengnu samþykki fjármálaráðherra.“
Við flm. þessarar brtt. álítum rétt, að sé bankinn stofnaður, þá standi að honum allir þeir kraftar, sem að iðnrekstri vinna í landinu og líklegir eru til stuðnings svo að um muni. Ég vil vænta þess, að þeir, sem vilja máli þessu vel, samþ. þessa till., ef þeir vilja ekki styðji till. um að efla iðnlánasjóð, en hana tel ég samkv. áðursögðu eðlilegasta eins og sakir standa.