18.12.1951
Neðri deild: 49. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1013 í B-deild Alþingistíðinda. (1592)

153. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús o.fl.

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Ég vil aðeins, að það komi fram, að þó að ég nefndi þessa tvo aðila áðan, þá er miklu fleiri, sem njóta þessara skattfríðinda. Það eru margar fleiri góðgerðastofnanir, sem koma undir þessi ákvæði, og ég álít, að þessi atriði eigi að taka til athugunar.